Creta Palm
Hótellýsing

Hótel Creta Palm er huggulegt og notalegt hótel sem hentar fjölskyldum vel. Hótelið er staðsett við aðalgötuna í Kato Stalos og er ströndin hinum megin við götuna. Ekki er mikið um verslanir eða veitingastaði í nágrenni hótelsins en hægt er að fá sér göngutúr í nærliggjandi bæi eins og Agia Marina og Platanias eða taka strætisvagn við hótelið til strandbæjanna eða inn í miðbæ Chania sem er í einungis 7 km fjarlægð. Íbúðirnar eru notalegar, rúmgóðar og smekklega innréttaðar í klassískum stíl. Allar íbúðirnar eru búnar svölum eða verönd sem snýr út í garðinn, kaffivél, ísskáp, loftkælingu, öryggishólfi (gegn gjaldi), sjónvarpi og á baðherbergi er ýmist sturta eða baðkar og hárþurrka. Þá er hér ágætur garður með tveimur sundlaugum, góðri sólbaðsaðstöðu og tvo sundlaugarbari. Góður hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu með bæði innlendum réttum ásamt alþjóðlegri matargerð. Einu sinni í viku er skemmtidagskrá bæði fyrir fullorðna og börn. Á hótelinu má einnig finna líkamsræktarstöð, heilsulind og leikherbergi fyrir börnin ásamt útileikvelli. Þetta hótel er tilvalið fyrir þá sem vilja vera í rólegu umhverfi og nálægt strönd. Hægt er að fara á brimbretti og eins eru flottir strandklúbbar ekki langt frá. Þá er gaman er að ganga eftir strandlengjunni í nærliggjandi strandbæi.