Atlantica Ocean Beach Resort
Hótellýsing

Nýuppgerð herbergi !

Hótel Atlantica Ocean Beach Resort  er sannkallað draumahótel barnanna. Það býður upp á allt innifalið þjónustu og er með stórum og flottum hótelgarði með fjórum sundlaugum, fimm rennibrautum, busllaug og fjölbreyttri afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Hótelið er staðsett á steinvölu Maleme-ströndinni um 17 km frá höfuðborginni Chania. Góðar almenningssamgöngur eru frá hótelinu til höfuðborgarinnar. 

Á hótelinu eru 357 herbergi, öll rúmgóð og innréttuð í nútímalegum stíl . Herbergin eru með loftkælingu, síma, gervihnattasjónvarpi, öryggishólfi og litlum ískáp. Baðherbergi eru með sturtu og hárþurrku. 

Hótelgarðurinn er mjög stór (65.000 m2) með sundlaugum, sérvatnagarði og grænum svæðum þar sem allir fjölskyldumeðlimir geta notið umhverfisins og tekið þátt í ýmsu fjöri og íþróttaviðburðum. Flott líkamsræktaraðstaða er til staðar, lítil verslun og diskótek.

Einn hlaðborðsveitingastaður eru á hótelinu og heitir hann Samaria og býður upp á fjölbreytt fæði í morgun-, hádegis- og kvöldverð og ýmiskonar þema í mat á kvöldin.  

Tveir veitingastaðir eru “a la carte” og þarf að bóka borð fyrirfram á þá báða. Annar er asískur og heitir Jasmine og hinn grískur og heitir Oregano.  

Eins er hér sundlaugabar sem afgreiðir einungis drykki og annar bar innanhúss (mathöll) þar sem hægt er að fá sér létt snarl og drykki. Það er einnig lítil ísbúð sem heitir Scoop. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.