Cretan Dream Resort and Spa
Hótellýsing

Hótel með stórkostlegu útsýni

Cretan Dream Resort and Spa er huggulegt hótel við ströndina í Kato Stalos. Hótelið er með mjög fallegan sundlaugargarð og stórkostlegt útsýni út á hafið þar sem sundlaugin rennur saman við sjóndeildarhringinn svo maður sér vart hvar laugin endar og hafið á upptök sín. Í garðinum eru einnig barir og veitingastaðir og ný og glæsileg heilsulind sem býður upp á fjölbreytta þjónustu og meðferðir. 
Herbergin eru hugguleg og hlýleg og eru öll með svölum eða verönd. Þau eru öll búin loftkælingu, síma, kæliskáp, sjónvarpi og öryggishólfi (gegn gjaldi) og hárþurrku á baðherbergi. Hótelgarðurinn er einstaklega fallegur með góðri sundlaug, sólbekkjum og sólhlífum, sundlaugabar og barnaleiksvæði. Á hótelinu eru tveir veitingastaðir, annar með hlaðborð og hinn a la carte sem og bar með huggulegu setsvæði. Heilsulindin er með líkamsræktaraðstöðu, upphitaðri sundlaug, saunu, gufubaði og býður upp á mismunandi snyrti- og heilsumeðferðir. Þá er hér leikherbergi með poolborði og tölvuspilakössum og lítil verslun. Frá hótelsvæðinu er hægt að ganga yfir á ströndina en undirgöng tengja hótelið og ströndina saman. Á svæðinu í kringum hótelið er ekki mikið um verslanir eða aðra þjónustu en strætisvagnar stoppa í um 100 metra fjarlægð frá hótelinu þar sem hægt er að taka vagna inn í næstu strandbæi eins og Agia Marina eða Platanias og einnig niður í gamla bæinn í Chania sem er í um 7 km fjarlægð.