Cretan Dream Royal Luxury Suites 18+
Hótellýsing
Cretan Dream Royal Luxury Suites tilheyrir Cretan Dream Royal hótelinu, nema þessi nýi hluti hótelsins er einungis fyrir 18 ára og eldri og býður afar góða þjónustu og glæsilegar svítur. Um er að ræða svokallaðar executive svítur ýmist með lítilli einkasundlaug eða án og allar eru þær með fallegri verönd. Hótelið er með mjög fallegan sundlaugargarð með stórkostlegu útsýni út á sjóinn þar sem sundlaugin rennur saman við sjóndeildarhringinn svo maður sér vart hvar laugin endar og hafið á upptök sín. Einnig er þar að finna bari og veitingastaði og nýja og glæsilega heilsulind sem býður upp á fjölbreytta þjónustu og meðferðir. Svíturnar eru mjög rúmgóðar og innréttaðar með nútímalegum hætti í jarðarlitum sem skapa notalegt og hlýlegt andrúmsloft. Allar svítur eru með góðu rúmi, loftkælingu, 42“ flatskjá með gervihnattarásum og á baðherbergjum eru inniskór, baðsloppur og hárþurrka. Hótelgarðurinn er einstaklega fallegur þar sem er að finna góða sundlaug, sólbekki og sólhlífar, sundlaugarbar og barnaleiksvæði. Á hótelinu eru tveir veitingastaðir, annar með hlaðborð og hinn a la carte sem og bar með huggulegu setsvæði. Hér er einnig að finna nýja heilsulind sem er með líkamsræktaraðstöðu, upphitaða sundlaug, saunu, gufubað og mismunandi snyrti- og heilsumeðferðir. Þá er hér leikherbergi með poolborði og tölvuspilakössum og lítil verslun. Frá hótelsvæðinu er hægt að ganga yfir á ströndina en undirgöng tengja saman hótelið og ströndina. Þrátt fyrir að þessi hluti hótelsins sé einungis fyrir fullorðna að þá er hinn hluti hótelsins auðvitað bókanlegur fyrir fjölskyldufólk, svo í aðalgarðinum má alveg búast við börnum að leik. Þetta er mjög gott hótel með fallega innréttaðar nýjar svítur þar sem lögð er áhersla á gæði og góða þjónustu. Á svæðinu í kringum hótelið er ekki mikið um verslanir eða aðra þjónustu en strætisvagnar stoppa í um 100 metra fjarlægð við hótelið þar sem hægt er að taka vagna inn í næstu strandbæi eins og Agia Marina eða Platanias og einnig niður í gamla bæinn í Chania sem er í um 7 km fjarlægð.