Royal Decameron Tafoukt
Hótellýsing

Hotel Decameron Tafoukt er ágætt og einfalt hótel, mjög vel staðsett við ströndina í Agadir. Hótelið er með sérstakt svæði á ströndinni fyrir hótelgesti þar sem hægt er að fá aðstöðu yfir daginn. 

Herbergin eru einföld en rúmgóð og vel búin öllum helstu þægindum. Öll herbergin hafa loftkælingu, öryggishólf (gegn gjaldi), setusvæði, síma, sjónvarp og á baðherbergi er ýmist baðkar eða sturta. Öll herbergin eru með svölum eða verönd og útsýni út á strönd eða út að sundlaug. 

Á hótelinu er heilsulind, snyrtistofa, tveir veitingastaðir, Café del Mar og Muso en þeir bjóða upp á marokkóska og alþjóðlega matargerð. Þá eru hér einnig tveir barir, líkamsræktaraðstaða og þvottaþjónusta. 

Hótelið er líflegt og þar er skemmti- og afþreyingadagská yfir daginn og á kvöldin. The Factory er diskótek hótelsins og þar er bar og DJ.  

Hér er góður með tveimur sundlaugum, sólhlífum og bekkjum. Í garðinum er leiksvæði fyrir börn og barnalaug. Gestir fá handklæði bæði fyrir sundlaug og strönd. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.