Dom Henrique
Hótellýsing

Þetta hótel hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi og er vel staðsett í miðbæ Porto. Via Catarina (verslunargatan) er í stuttu göngufæri við hótelið. 

Hér eru hlýleg herbergi, öll búin skrifborði, öryggishólfi, sjónvarpi, loftkælingu og mini-bar. Þá er hér hægt að panta herbergisþjónustu (e. room service) gegn auka gjaldi. Á baðherbergi er hárþurrka. 

Á hótelinu er fallegur bar með stórkostlegu útsýni yfir borgina. Hér er einnig veitingastaður með hefðbundna portúgalska matargerð og líkamsrækt. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Gott og vel staðsett hótel í miðbæ Porto