Doubletree by Hilton
Hótellýsing

Hér er um að ræða gott hótel sem er staðsett hjá Green Gold center verslunarmiðstöðinni í viðskiptahverfi Zagreb.

Hótelið er í um 2ja kílómetra fjarlægð frá gamla bænum en í göngufæri við allar helstu verslanir og veitingastaði. 

Herbergin eru fallega hönnuð og vel búin öllum helstu þægindum. Hér er sjónvarp, mini-bar, loftkæling og kaffi- og te aðstaða. Á baðherbergi er hárþurrka. 

Á hótelinu er veitingastaður, bar, inni sundlaug og sauna auk líkamsræktaraðstöðu og heilsulind. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.