El Andalous Lounge & Spa Hotel
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt hótel, staðsett í Hivernage hverfinu, í um 10 mínútna göngufæri frá Jemaa El Fna torginu í miðbæ Marrakech. 

Hótelið er fallega innréttað með arabísku-andalúsísku ívafi. 

Herbergin eru falleg og rúmgóð og búin öllum helstu þægindum. Í öllum herbergjum er að finna sjónvarp, öryggishólf, loftkælingu og mini-bar og á baðherbergi er hárþurrka. 

Á hótelinu eru samtals fjórir veitingastaðir, þar af einn hlaðborðsveitingastaður og snarl-bar. Hér er einnig hægt að panta herbergisþjónustu gegn auka gjaldi, allan sólarhringinn. Hér eru einnig þrír barir. 

Þá er hér einnig Andalucia Spa heilsulindin en þar er hægt að panta allskyns meðferðir gegn aukagjaldi. Í boði eru hefðbundnar meðferðir Marokkó eins og hammam bað og nudd með arganolíu. Þá er þar einnig líkamsræktaraðstaða og hægt er að fara í klippingu og hand-og fótsnyrtingu. 

Í garðinum eru tvær sundlaugar, sólbekkir og sólhlífar. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.