El Puerto by Pierre Vacances
Hótellýsing

Vel staðsett hótel, alveg við ströndina í Fuengirola, en í nánasta umhverfi hótelsins er hægt að finna ýmsa afþreyingu bæði á ströndinni og í bænum. Stutt er í golfvelli og starfsfólk hótelsins getur upplýst um næstu velli.

Herbergin eru fallega innréttuð í nútímalegum stíl og ljósum litum. Öll herbergin eru búin litlum ísskáp, loftkælingu, sjónvarpi og svölum. Á baðherbergi er sturta og hárþurrka. Hægt er að leigja aukalega öryggishólf og hitaketil gegn auka gjaldi. 

Hér er glæsileg aðstaða á þakinu með bar og sundlaug sem er opin frá hádegi. Sundlaugin er stór hringur og bekkirnir eru raðaðir umhverfis laugina. Hægt er að leigja baðhandklæði í móttöku hótelsins. Á hótelinu er einnig hlaðborðsveitingastaður.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.