Moon Dreams Torremolinos Hotel
Hótellýsing

Moon Dreams Torremolinos Hotel er nýtískulegt hótel sem hentar fullorðnum mjög vel en síður barnafólki. Þetta er sjarmerandi hótel sem er vel staðsett í La Carihuela og er rómað fyrir góða þjónustu. Hótelið hét áður El Tiburón Boutique & Spa.

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn og er alltaf hægt að leita eftir aðstoð þar. Að auki er hægt að leigja bílaleigubíl eða reiðhjól.

Athugið að hér eru hundar velkomnir svo þetta hótel hentar ekki þeim sem eru ekki hrifnir af slíku.

Herbergin eru innréttuð í rómantískum og fallegum stíl og eru öll vel búin helstu þægindum. Í þeim má finna loftkælingu, sjónvarp, öryggishólf (gegn gjaldi), minibar og kaffi- og te aðstöðu. Á baðherbergjum er baðkar með sturtu. Svalir eða verönd fylgja einungis þar til merktum herbergjum.

Á hótelinu er fín heilsulind þar sem hægt er að gera vel við sig og slaka á. Ýmsar líkamsmeðferðir eru í boði gegn gjaldi. Að auki er aðstaða til líkamsræktar. Læknisaðstoð er fyrir hendi á hótelinu. Hótelið sjálft sér ekki um neina afþreyingu en verktakaþjónusta sér um slíkt og er það reglulega í boði. Þvottaþjónusta er á hótelinu gegn gjaldi.

Hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu og þar má einnig finna barsvæði.

Garðurinn er ekki stór en það er sundlaug í honum og hægt að sóla sig á sólbekkjum við sundlaugina eða uppi á verönd. Hægt er að fá sólhlífar að auki. Handklæði fylgja öllum sólbekkjum. Einnig er nuddpottur í garðinum.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Rólegt og sjarmerandi hótel!