Es Saadi
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt og vel staðsett hótel, staðsett í um 10 mínútna göngufæri frá Jemaa El Fna torginu í miðborg Marrakech. 

Á hótelinu er sannkölluð Marokkósk gestrisni og umhverfis hótelið er mikill gróður í fallegum og stórum garði. 

Herbergin eru falleg og í hefðbundnum marokkóskum stíl. Þau eru rúmgóð og öll eru búin loftkælingu, sjónvarpi, mini-bar, sjónvarpi og svölum. Hér er hægt að panta herbergisþjónustu gegn gjaldi, allan sólarhringinn. 

Á hótelinu eru fjórir veitingastaðir og tveir barir. Hér er garðurinn stór og gróðurmikill með sundlaug og sundlaugarbar. Einnig má hér finna næturklúbb, heilsulind, spilavíti, góða líkamsræktaraðstöðu þar sem hægt er að fara í allskyns hóptíma (fyrir fram bókanir á hótelinu) og tennisvöll. 

Hótelið er einnig gott fyrir fjölskyldur en það er starfræktur barnaklúbbur fyrir 4-12 ára. Þar er meðal annars hægt að fara í marokkóska tónmenntatíma, danstíma, garðyrkjufræði, hreyfitíma og læra að skrifa á arabísku. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.