Esplanade Zagreb
Hótellýsing

Hér er um að ræða vel staðsett hótel, tilvalið fyrir stóra hópa! 

Þetta virðulega hótel var opnað fyrst árið 1925 og hefur verið hluti af sögu borgarinnar allar götur síðan. Hótelið var allt tekið í gegn árið 2004. Hótelið er staðsett í stuttu göngufæri við aðal járnbrautarstöðina í miðborginni. 

Á hótelinu eru 208 herbergi og svítur. Öll herbergin eru búin loftkælingu, sjónvarpi, síma, öryggishólfi, mini-bar, sloppum og inniskóm. Á baðherbergi má finna L‘Occitane snyrtivörur, sturtu eða baðkar og hárþurrku. Hér er hægt að panta herbergisþjónustu allan sólarhringinn (e. room service). 

Á hótelinu eru tveir þekktir veitingastaðir, Zinfandel´s, sem er eitt best þekkta veitingahús í Kroatíu og Le Bistro Restaurant þar sem áhersla er lögð á franskan og króatískan mat. Þá er hér einnig kokteilbar sem er afar vinsæll. 

Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða sem gestir hafa aðgang að gegn auka gjaldi og hraðbanki. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.