Estival Torrequebrada
Hótellýsing

Hotel Estival Torrequebrada er fallegt hótel sem er staðsett alveg við ströndina í Benalmádena. Þetta er hótel sem meðal annars býður upp á allt innifalið þjónustu. Beint aðgengi er frá hótelinu út að strönd. Hér má einnig finna spilavíti inn á hótelinu, en gestir hótelsins fá frían aðgang í spilavítið.

Herbergin eru nútímaleg og björt og eru vel búin helstu þægindum eins og sjónvarpi, síma, loftkælingu, öryggishólfi og mini-bar gegn gjaldi. Á baðherbergjum er hárþurrka. Svalir eða verönd fylgja öllum herbergjum. Superior herbergin eru með sjávarsýn og eru auk þess mjög rúmgóð, eða 42m². Junior svíturnar eru 48m² og hafa auk þess setusvæði. Svíturnar eru 50m² og eru með stofu að auki.

Stór, en notalegur hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu sem býður upp á úrval girnilegra rétta, kvölds og morgna.

Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða og heilsulind, þar sem hægt er að bóka ýmsar nudd og dekurmeðferðir gegn gjaldi. Börn undir 16 ára aldri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum öllum stundum, en börn undir fjögurra ára aldri er óheimilt að vera í heilsulindinni. Fjölþættan íþróttavöll má einnig finna á hótelinu þar sem hægt er að spila fótbolta, körfubolta og tennis. Einnig eru borðtennisborð á svæðinu, en bóka þarf aðstöðu í gestamóttökunni.

Garðurinn er snyrtilegur en þar má finna sundlaug ætluð fjölskyldufólki, þar sem öll skemmtun og afþreying fer fram, barnalaug sem ætluð er börnum og svo sundlaug sem eingöngu er fyrir 16 ára og eldri. Sólbekkir og sólhlífar eru svo til afnota fyrir þá sem vilja flatmaga í sólinni. Skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa er í boði yfir háannatímann.

Fyrir golfáhugasama þá er Torrequebrada golfvöllurinn í 2 km fjarlægð. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Fallegt og notalegt hótel!