Hotel Eurostars Aliados
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt og vel staðsett hótel. Frá hótelinu tekur um 20 mínútur að ganga niður í Ribiera hverfið og að ánni. Hótelið stendur við Aliados Aveniue, en þar má finna helstu einkenni borgarinnar ásamt veitingastöðum og kaffihúsum. Við hótelið er metróstöð sem er afar þægileg og tekur um 3-5 mínútur að komast í miðbæinn með þeim hætti. 

Herbergin eru afar hlýleg og fallega innréttuð í nútímalegum stíl. Þau eru öll búin loftkælingu, sjónvarpi, mini-bar, öryggishólfi, síma. Á baðherbergi er hárþurrka.

Á þessu hóteli er veitingastaður sem býður upp á portúgalska rétti ásamt alþjóðlegum réttum. Morgunverður er borinn fram á veitingastaðnum.

Heilsulind er á hótelinu þar sem hægt er að láta líða úr sér í gufu, heitum pottum eða fara í nudd (gegn gjaldi) eftir amstur dagsins auk þess er þar líkamsrækt.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Tilvalið fyrir hópa eða pör