Flamingos Hotel
Hótellýsing

Einfalt hótel með vinalegum blæ!

Hótelið er staðsett 200 metra frá Agii Apostoli ströndinni um 3 km frá Chania. 

Það er ekki móttaka opin allan sólarhringinn en það er hægt að fá almenna þjónustu og upplýsingar. 

Hér er lítil sundlaug en þar eru sólbekkir, sólhlífar og lítill sundlaugarbar. 

Herbergin eru einföld og öll með svölum eða verönd.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Kósý hótel!