Hótelið er staðsett nálægt aðalgötunni, Rua de Santa Catarina. Hótelið er skemmtilega innréttað á nútímalegan en framandi hátt.
Hótelið er ekki stórt, en þar eru 49 herbergi. Herbergin eru öll búin sjónvarpi, loftkælingu, öryggishólfi og litlum ísskáp.
Á hótelinu er bar með útisvæði þar sem hægt er að kaupa léttar veitingar og drykki og hlaðborðsveitingastaður.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Gott hótel miðsvæðis í Porto