The Views Bahia
Hótellýsing

The Views Bahia er gott 4 stjörnu hótel staðsett nálægt miðbænum í Funchal.  Hótelið stendur ofarlega í hlíðinni fyrir ofan borgina með stórbrotnu útsýni yfir borgina og næsta nágrenni.  Hótelið  er eingöngu fyrir fullorðna.  Á hótelinu eru tvær sundlaugar, önnur þeirra innilaug.  Góð heilsurækt með nuddpotti og þá er einnig ágætis líkamsræktaraðstaða.
Veitingastaður hótelsins býður uppá fjölbreyttan matseðil, bæði alþjóðlegan og mat frá Miðjarðarhafðinu.  Einig er hægt að kaupa bæði mat og drykk við sundlaugina.
Herbergin eru rúmgóða og vel búin helstu þægindum.  Öll herbergi eru með svölum, minibar og öryggishólfi ásamt loftkælingu.  
Hótelið er í göngufæri við miðbæinn, gamla bæðinn og smábátahöfnina.  Gangan tekur rúmlega hálftíma.

Gott 4 stjörnu hótel með glæsilegu útsýni yfir borgina.