Galini Sea View
Hótellýsing

Galini Sea View er vinsælt hótel sem býður upp á afar fjölbreytta þjónustu. Aðalbygging hótelsins stendur upp á hæð í bænum Agia Marina og er með einstaklega fallegt útsýni yfir Chania flóann og Thodorou eyjuna. Þetta er líflegt hótel með fallega garða og aðra byggingu niður við ströndina þar sem einnig er að finna sundlaug með sólbaðsaðstöðu, sundlaugarbar og sólbekki og hlífar á ströndinni. Vert er þó að nefna að aðalbyggingin stendur hátt og nokkuð er um tröppur og brekkur, hótelið hentar því ekki þeim sem eiga erfitt með gang. 

Herbergin eru hlýleg og stílhrein og öll með svölum eða verönd. Þau eru vel búin með loftkælingu, kæliskáp, kaffivél, sjónvarpi, síma og öryggishólfi (gegn gjaldi) og á baðherbergi er hárþurrka. 

Við aðalbygginguna er fallegur tvískiptur garður með sundlaugum. Við báðar laugarnar er að finna sólbekki og sólhlífar en baðhandklæði fylgja herbergjunum. Einnig er sundlaug með sólbaðsaðstöðu við þann hluta hótelsins sem er niður við ströndina og sundlaugarbar þar sem hægt er að fá drykki og léttar veitingar. Eins eru sólbekkir og sólhlífar á ströndinni. Hótelið býður upp á reglulegar ferðir með golfbílum á milli bygginga fyrir þá sem ekki vilja ganga. Ekki er mikið við að vera í næsta nágrenni hótelsins en hægt er að fá sér göngutúr inn í miðbæjarkjarna Agia Marina eða taka strætisvagn inn til Chania sem er í um 8 km fjarlægð.

Á hótelinu er huggulegur hlaðborðsveitingastaður með fjölbreyttu úrvali af mat og tveir a la carte veitingastaðir; annar ítalskur og hinn kínverskur, þar sem hægt er að borða einu sinni á hvorum stað að kostnaðarlausu á meðan á dvöl stendur. Á hótelinu má einnig finna litla líkamsræktaraðstöðu og innilaug, heilsulind sem býður upp á fjölbreyttar snyrti- og heilsumeðferðir, hárgreiðslustofu, verslun og afþreygingarherbergi með allskyns tölvuspilum og reglulegri skemmtidagskrá. 

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.