Garni Hotel Casa di Sofia
Hótellýsing

Garni Hotel Casa di Sofia fallegt hótel staðsett í nágrannabænum Bečići. Miðbær Budva er í ca 5 km fjarlægð.

Hótelið er fallega innrétta í ljósum litum og nýtískulegum stíl og stasett undir fjallshlíðum Bečići og stutt er á ströndina.

Herbergin eru rúmgóð og fallega innréttuð. Í öllum herbergjum eru loftkæling, sjónvarp, ísskápur, öryggishólf og svalir, á baðherbergi er hárþurrka.

Sundlaug er í garði hótelsins, sundlaugin er opin eftir árstíðum og veðurfari. Þar má finna sólbekki og sólhlífar.


Veitingastaður og bar er á hótelinu. Á veitingastaðnum er boðið upp á miðjarðarhafsrétti ásamt alþjóðlegum mat. Hér er boðið upp á morgunverðarhlaðborð.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

 

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.