Garten Hotel Völser Hof notalegt hótel fyrir fullorðna í miðbæ Fiè allo Sciliar.
Hótelið er með 29 herbergjum, veitingastað, bar, skíðageymslu, líkamsræktaraðstöðu og heilsulind með innisundlaug, sauna og afslöppunarsvæði. Hægt er að bóka nudd og ýmsar snyrtimeðferðir í heilsulindinni – gegn gjaldi.
Herbergin eru rúmgóð björt með svölum. Á öllum herbergjum eru svalir, sími, sjónvarp, öryggishólf minibar og hárþurrka á baðherbergi. Gestir á vegum Heimsferða geta valið á milli Comfort herbergja 20 m² og Junior svíta 32 m²
Nálægar skíðalyftur:
- Seis - Seiser Alm-skíðalyftan 6 km
- Cabrio Cable Car Tiers 7 km
Almenningssamgöngur í 250 m fjarlægð sem bjóða upp á tengingar við Alpe di Siusi-skíðalyfturnar
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.