Hótel fyrir eingöngu fullorðna
Kolymbari er lítill rólegur bær í um 23km fjarlægð frá Chania. Hótelið Giannoulis Grand Bay Beach Resort stendur við steinvöluströnd rétt fyrir utan bæinn og bíður uppá fallegt útsýni yfir Chania-flóa. Hótel er selt eingöngu fyrir 18 ára og eldri. Þetta er rólegt svæði og tilvalið fyrir þá sem vilja njóta sín í fríinu.
Sundlaugargarðurinn er með sundlaug og góðri sólbaðstaðu með sólbekkjum og sólhlífum (gegn gjaldi). Aðgengi úr garðinum er út ströndina. Veitingastaðir og barir eru á hótelinu og einnig í sundlaugargarðinum.
Líkamsræktaraðstaða og nuddpottur eru á hótelinu.
Herbergin eru innréttuð í fallegum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, sjónvarpi, svölum/verönd, öryggishólfi (gegn gjaldi), minibar (gegn gjaldi) og síma og á baðherbergi má finna hárþurrku inná flestum herbergjum.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Fallegt hótel í rólegu umhverfi