Giannoulis Santa Marina Beach Resort
Hótellýsing

Fallegt hótel við ströndina

Hótelið Giannoulis Santa Marina Beach Resort er staðsett á Agia Marina (Santa Maria) svæðinu sem er um 8 km frá Chania borginni. Hótelið stendur við langa sandströnd og stutt er í alla helstu þjónustu. Hótelið samanstendur af þremur byggingum en hægt er að fara í gegnum undirgöng á milli þeirra.

Sundlaugargarðurinn er með sundlaug, barnalaug og góðri sólbaðstaðu með sólbekkjum og sólhlífum (gegn gjaldi). Aðgengi úr garðinum er út ströndina. Veitingastaðir og barir eru á hótelinu og einnig í sundlaugargarðinum. Lítil líkamsræktaraðstaða, barnaklúbbur og ýmis dagskrá eru í boði á hótelinu yfir daginn. 

Herbergin eru innréttuð í fallegum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, sjónvarpi, svölum/verönd, öryggishólfi (gegn gjaldi), minibar (gegn gjaldi) og síma og á baðherbergi má finna hárþurrku.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Við strönd og stutt í alla þjónustu!

Ekki tókst að sækja staðsetningu