Giannoulis Santa Marina Plaza
Hótellýsing

Hótel fyrir eingöngu fullorðna

Hótelið Giannoulis Santa Marina Plaza er staðsett á Agia Marina (Santa Maria) svæðinu sem er um 8 km frá Chania borginni. Hótelið stendur við langa sandströnd og stutt er í alla helstu þjónustu. Hótelið er eingöngu fyrir 18 ára og eldri.

Sundlaugargarðurinn er með sundlaug og góðri sólbaðstaðu með sólbekkjum og sólhlífum (gegn gjaldi). Aðgengi úr garðinum er út ströndina. Veitingastaðir og barir eru á hótelinu og einnig í sundlaugargarðinum. Lítil líkamsræktaraðstaða og nuddpottur er á hótelinu.

Herbergin eru innréttuð í fallegum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, sjónvarpi, svölum/verönd, öryggishólfi (gegn gjaldi), minibar (gegn gjaldi) og síma og á baðherbergi má finna hárþurrku.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Fallegt hótel á góðri staðsetningu!

Ekki tókst að sækja staðsetningu