Giannoulis Spada Luxury Sport & Leisure Resort
Hótellýsing

Nýtt 5* glæsilegt hótel


Kolymbari er lítill rólegur bær í um 23km fjarlægð frá Chania. Hótelið Giannoulis Spada Luxury Sport & Leisure Resort,  sem er nýlega opnað, stendur við steinvöluströnd rétt fyrir utan bæinn og bíður uppá fallegt útsýni yfir Chania-flóann. Þetta er rólegt svæði og tilvalið fyrir þá sem vilja njóta sín í fríinu.

Sundlaugargarðurinn er mjög fallegur með stórri sundlaug og sér barnalaug. Í garðinum er mjög góð sólbaðstaða og úr garðinum er aðgengi út strönd þar sem einnig er hægt að fá sólbekki og sólhlífar. Nokkrir veitingastaðir og barir eru á hótelinu og einnig í sundlaugargarðinum.

Flott líkamsræktaraðstaða er á hótelinu, ásamt fallegri heilsulind með innilaug, nuddpotti og saunu ásamt hvíldarherbergi. Hér er í boði ýmsar snyrti-og nuddmeðferðir gegn gjaldi. Hótelið bíður einnig uppá barnaklúbb og ýmsa afþreyingu fyrir bæði börn jafn og fullorðna yfir daginn og fram á kvöld. Sportklúbbur er starfræktur á hótelinu og bíður uppá mjög flotta aðstöðu fyrir ýmsa íþróttahópa.

Herbergin eru innréttuð í fallegum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, sjónvarpi, svölum, öryggishólfi (gegn gjaldi), minibar (gegn gjaldi) og síma og á baðherbergi má finna hárþurrku.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Glæsilegt 5* hótel með góðri aðstöðu!