Golden Bay Suites
Hótellýsing

Golden Bay er huggulegt og notalegt íbúðarhótel sem staðsett er við ströndina í Agioi Apostoloi. Á þessu fallega svæði er að finna þrjár strendur og skógivaxið og vinsælt útivistarsvæði þar sem er einnig leikvöllur fyrir börnin. Þetta er rólegt og fallegt umhverfi en með góðum veitingastöðum og kaffihúsum í nágrenni við hótelið. 

Gistingin er smekklega hönnuð í litlum tveggja hæða byggingum alveg við ströndina. Íbúðirnar eru rúmgóðar og hlýlegar og allar með svölum eða verönd og vel búnar með loftkælingu, sjónvarpi, síma, eldhúskrók og kæliskáp, kaffivél, öryggishólfi (gegn gjaldi) og baðherbergi með hárþurrku. 

Í garðinum er góð sundlaug ásamt sólbaðaðstöðu og svo er ströndin sjálf beint fyrir framan hótelið. Á hótelbarnum er hægt að fá létta rétti og drykki en einnig er að finna litla matvöruverslun við gististaðinn. 

Þetta hótel er þægilegt fyrir þá sem vilja vera í fallegu og notalegu umhverfi við ströndina og er þetta mjög fjölskylduvænt svæði. Stutt er á næstu strætisvagnastöð þar sem hægt er fara til Chania sem er í um 4 km fjarlægð eða til strandbæjanna Agia Marina og Platanias.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.