Hér er um að ræða íbúðarhótel, staðsett við ströndina í um 15 mínútna göngufæri frá miðbæ Agadir.
Á hótelinu er móttakan er opin allan sólarhringinn og hótelið er innréttað í skemmtilegri blöndu af nútíma- og hefðbundnum marokkóskum stíl.
Junior svíturnar eru einfaldar, allar með svefnherbergi og stofu, eldhúskrók og svölum. Í eldhúsinu er að finna ísskáp, helluborð, örbylgjuofn og leirtau. Allar íbúðirnar eru með loftkælingu, sjónvarpi, síma og á baðherbergi er hárþurrka.
Á hótelinu er veitingastaður, kaffihús, lítil verslun og bókasafn. Í garðinum er að finna tvær sundlaugar og sólbekki.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.