Grande Real Santa Eulalia er fallegt fimm stjörnu hótel staðsett alveg við Santa Eulalia ströndina, um 1 km frá gamla miðbænum í Albufeira. Á ströndinni er í boði ýmis afþreying, bátsferðir, sjóskíði, köfum og veiði. Fallegt útsýni er frá hótelinu yfir sjóinn og næsta nágrenni.
Íbúðirnar eru ágætlega rúmgóðar og innréttaðar í litríkum stíl. Allar eru með svölum og búnar helstu þægindum eins og loftkælingu, sjónvarpi, þráðlausu interneti (wifi) og öryggishólfi (gegn gjaldi). Þá er eldhúsaðstaða í íbúðunum með hraðsuðukatli, ísskáp, örbylgjuofni, ristavél, kaffivél og eldhúsborði. Baðherbergin eru rúmgóð með baðkari og hárþurrku.
Í hótelgarðinum eru alls fjórar sundlaugar og þrjár barnalaugar. Þá eru þrír sundlaugarbarir og kaffihús í garðinum. Tveir góðir veitingastaðir eru á staðnum, annar þeirra er hlaðborðsveitingastaður en hinn býður upp á veitingar af matseðli (a la carte). Barnadagskrá er starfrækt yfir háannatímann og í garðinum er leiksvæði fyrir yngstu börnin.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna.