H10 Big Sur
Hótellýsing

Hér er um að ræða hótel sem er aðeins fyrir fullorðna, 18 ára og eldri. Hótelið er staðsett rétt við ströndina í Los Cristianos. 

Hótelið er fallega innréttað í Miðjarðarhafsstíl og telur 167 herbergi. Herbergin eru fallega innréttuð í ljósum litum. Öll herbergin eru búin loftkælingu, Nespresso kaffivél, sjónvarpi, mini-bar (gegn gjaldi), öryggishólfi (gegn gjaldi) og svölum. Á baðherbergi er ýmist baðkar eða sturta, stækkunarspegill, sloppar, inniskór og hárþurrka. 

Hér er hlaðborðsveitingastaður með inni- og útisvæði, „A la carte“ veitingastaður, þrír barir,  líkamsræktaraðstaða, heilsulind, hárgreiðslustofa og hægt er að fara í minigolf, borðtennis og billiard. 

Í garðinum er góð sundlaug sem er upphituð á veturna, sólbekkir og sólhlífar. Þá er einnig nuddpottur og sundlaugarbar. Á þaki hótelsins er skemmtilegur „chill-out“ bar en þar er að finna sólbekki og glæsilegt útsýni út á haf og yfir næsta nágrenni.  Á kvöldin er skemmtidagskrá á Cactus Bar

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.