Helios Apartments
Hótellýsing

Helios Apartments er huggulegt og rólegt íbúðarhótel með notalegum sundlaugargarði í skemmtilegu umhverfi í Agioi Apostoli. Rétt við hótelið er að finna þrjár fallegar strendur sem mynda litlar víkur og mjög vinsælt útivistarsvæði alsett furutrjám og tröllatrjám og er þar einnig að finna leiksvæði fyrir börnin. Þetta er frekar rólegt svæði en samt með þó nokkuð af veitingastöðum, kaffihúsum og nokkrar verslanir. Það er einnig stutt að fara inn til Chania sem er í einungis 4 km fjarlægð. 

Hótelið er mjög huggulegt og snyrtilegt og er á tveimur hæðum. Hér eru í boði bæði íbúðir og stúdíó íbúðir sem eru allar mjög rúmgóðar og smekklega innréttaðar. Allar íbúðirnar eru með svalir og búnar loftkælingu (gegn gjaldi), öryggishólfi (gegn gjaldi), kæliskáp, síma og sjónvarpi og á baðherbergjum er hárþurrka. 

Garðurinn er lítill en fallegur og er með sundlaug og barnalaug ásamt sólbaðsaðstöðu. Í anddyri hótelsins er bar sem snýr út í garðinn og selur drykki, léttar máltíðir og ís. Helios er tilvalið fyrir þá sem vilja vera á rólegum og fallegum stað í skemmtilegu umhverfi. Hér er að finna nokkuð af góðum veitingastöðum og kaffihúsum en ekki er mikið um næturlíf eða verslanir. Strætisvagnar stoppa mjög nálægt hótelinu er hægt að taka þá inn í gamla bæinn í Chania eða í strandbæina Agia Marina eða Platanias.

Athugið einnig að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.