HG Cristian Sur
Hótellýsing

Hér er um að ræða vel staðsett og vinsælt íbúðarhótel staðsett í Los Cristianos. Héðan er ekki langt að ganga niður á strönd eða inn í miðju svæðisins þar sem er að finna fjöldan allan af veitingastöðum, börum og annarri afþreyingu.

Hótelið er tilvalið fyrir fjölskyldur, en hér er hægt að bóka allt að 6 aðila í gistingu. 

Hótelið er ekki á mörgum hæðum en hér er ekki lyfta, svo hótelið hentar ekki þeim sem eiga erfitt með gang.

Íbúðirnar eru rúmgóðar og flestar á tveimur pöllum. Allar hafa þær eldhúsaðstöðu með ísskáp, eldavél, hitakatli, ristavél og kaffivél, svefnsófa í stofu, sjónvarp, síma, öryggishólf (gegn gjaldi), svalir eða verönd með húsgögnum. Á baðherbergi er ýmist baðkar eða sturta en hér þarf að óska sérstaklega eftir hárþurrku við komuna. 

Íbúð með einu svefnherbergi er fyrir hámark þrjá fullorðna og eitt barn eða tvo fullorðna og tvö börn. 

Íbúð með tveimur svefnherbergjum er fyrir hámark fimm fullorðna og eitt barn eða fjóra fullorðna og tvö börn. Í þessari íbúð eru tvær svalir eða svalir og verönd. 

Í garðinum eru tvær sundlaugar (ein upphituð á veturna) og tvær barnalaugar, sólbekkir og sólhlífar. Á hótelinu má einnig finna bar, snarlbar, billjarð borð, litla verslun og þvottahús. Móttakan er opin allan sólarhringinn. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu gegn gjaldi, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Vinsæll kostur nálægt strönd!