Hilton Garden Inn
Hótellýsing

Hér er um að ræða gott hótel, staðsett í viðskiptahverfinu í Zagreb í um það bil tveggja kílómetra fjarlægð frá Ban Jelacic torginu. Umhverfi hótelsins er líflegt og stutt er í helstu veitingastaði og verslanir. 

Herbergin eru smekklega innréttuð, vel búin helstu þægindum og eru ágætlega rúmgóð. Öll herbergin eru búin litlum ísskáp, sjónvarpi, skrifborði, kaffi- og te aðstöðu, sloppum og inniskóm, loftkælingu og síma. Á baðherbergi er hárþurrka. 

Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða og veitingastaður með fjölbreyttu úrvali rétta í boði. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.