Hilton Taghazout Bay Beach Resort & Spa
Hótellýsing

Hotel Hilton Taghazout er mjög gott hótel staðsett við ströndina í Taghazout Bay. Hótelið er nýtt og afar glæsilegt og býður upp á góða þjónustu. 

Taghazout bærinn er skemmtilegt ósnert fiskimannaþorp þar sem mannlífið er afar fjölbreytt og afslappað. Meðfram strandgötunni í þorpinu er fjöldi veitingahúsa. Það tekur um 10 mínútur með leigubíl frá hótelinu inn í þorpið en einnig er hægt að ganga eftir ströndinni. Heimamenn bjóða einnig upp á ferðir með úlföldum á ströndinni til og frá bænum. Héðan er einnig stutt í bæinn Tamrakt. 

Herbergin hér eru rúmgóð og fallega innréttuð í nútíma- og marrakóskum stíl sem blandast skemmtilega saman. Herbergin eru 35 fm, með svölum og snúa út í garðinn. Öll herbergin eru búin loftkælingu, sjónvarpi, mini-bar og kaffi- og te aðstöðu. Á baðherbergjum er hárþurrka, sloppar og inniskór. Hér er hægt að panta herbergisþjónustu gegn gjaldi. 

Á hótelinu er heilsulind með innisundlaug og nuddpottum, líkamsræktaraðstaða og stór sundlaugargarður með góðum bekkjum og sólhlífum. Í garðinum er snarlbar við sundlaugina og hægt er að ganga beint úr garðinum á ströndina. Þá eru hér einnig fimm veitingastaðir og tveir barir. 

Örstutt er á Taghazout golfvöllinn, 27 holu völlur sem stendur á hæðinni fyrir ofan hótelið.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Stórglæsilegt hótel sem heldur vel utan um gestina sína.