Holiday Inn Porto Gaia
Hótellýsing

Hótelið er staðsett í Gaia hverfinu og tekur um 30 mín að ganga niður í Ribiera hverfið við ánna.  En þar má finna helstu einkenni borgarinnar ásamt veitingastöðum og kaffihúsum. Það tekur um 10 mínútur í akstri að fara í miðbæinn. 

Herbergin eru hlýleg og rúmgóð og búin sjónvarpi, síma, mini-bar, öryggishólf og te- og kaffi aðstaða. Á baðherbergi er baðkar með sturtu og hárþurrka. 

Á hótelinu má finna heilsulind, veitingastað og bar og vel búna líkamsrækt á 22. hæð hótelsins. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Tilvalið fyrir hópa