Holiday World Riwo
Hótellýsing

Hótel Holiday Riwo er stórt og fjörugt hótel sem hentar barnafjölskyldum einkar vel. Í boði er taka allt innifalið þjónustu.

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn og einnig er gæsla allan sólarhringinn.  

Junior svíturnar eru stílhreinar, rúmgóðar og allar útbúnar helstu þægindum. Þar má meðal annars finna sjónvarp, loftkælingu, öryggishólf (gegn gjaldi), síma og ísskáp. Svalir eða verönd ásamt útihúsgögnum fylgja öllum junior svítunum. Á baðherbergjum er hárþurrka og bæði sturta og baðkar. Svíturnar eru hannaðar með það í huga að fólk með skerta hreyfigetu geti notið sín einnig. Hér er hægt að panta herbergisþjónustu gegn gjaldi. 

Á hótelinu er barnaklúbbur starfræktur fyrir 4-12 ára sem og ævintýraklúbbur fyrir eldri börn, 12–17 ára. Þeir sem taka „Allt innifalið“ þjónustu fá frían aðgang að strandklúbbi hótelsins en þar eru heitir pottar, rennibrautir og öldulaug svo fátt eitt sé nefnt. Skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa er í boði bæði á daginn og kvöldin. Lukkudýr hótelsins munu án efa gleðja ungu kynslóðina mikið.

Ýmsa þjónustu má finna á hótelinu. Hægt er að nýta sameiginlega þvottaaðstöðu gegn gjaldi og versla má ýmsar vörur í versluninni sem þar er að finna. Hér er auk þess heilsu- og líkamsrækt og hægt að bóka ýmsar nudd- og dekurmeðferðir gegn gjaldi.

Góður hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu sem býður upp á þemakvöld mörgum sinnum í viku, t.d. mexíkanskt þema og sjávarrétta þema. Þá er hér einnig að finna sundlaugarbar þar sem hægt er að panta sér ýmsa smárétti ásamt kokteilbar.

Hótelgarðurinn er stór en þar má finna nánast allt sem hugurinn girnist, sundlaugar, sólbekki, leiksvæði fyrir börn, íþróttasvæði, blómstrandi garða, útisvið og sérstakan leikvöll þar sem hægt er að spila franskt „boules“. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Hingað vilja börnin koma aftur og aftur!