Hotel delle Palme er staðsett í u.þ.b. 10 mínútna göngufjarlægð frá gamla bænum í Lecce.
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er veitingastaðurinn Estia Banqueting.
Herbergin eru rúmgóð, og á öllum herbergjum eru sími, sjónvarp, minibar, öryggishólf, loftkæling og hárþurrka á baðherbergi.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.