Hotel Academia Zagreb
Hótellýsing

Nýtískulegt hótel, vel staðsett í um 700 metra fjarlægð frá Ban Jelacic torginu. 

Hótelið er lítið en fallegt. Hér eru um 50 herbergi. Herbergin eru rúmgóð og í öllum þeirra er annaðhvort king size rúm eða tvö minni rúm. Á öllum herbergjum er öryggishólf, loftkæling, sími, mini-bar, sjónvarp og á baðherbergi er ýmist baðkar eða sturta og hárþurrka.

Hér er góð fundaraðstaða og móttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er bar og veitingastaður, en í næsta umhverfi hótelsins er einnig að finna ótal veitingastaða og verslana.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.