Hotel Alay
Hótellýsing

Hér er um að ræða gott hótel, vel staðsett í Benalmádena.

Hótelið er staðsett alveg við ströndina og beint á móti snekkjubátahöfninni, Puerto Marina. Um 10 mínútna gangur er upp að 24 hour square, en þar er að finna skemmtilegt torg sem er umvafið veitingastöðum, börum og næturklúbbum. 

Hótelið hefur nýlega verið tekið í gegn og er eingöngu ætlað fullorðnum, 16 ára og eldri. 

Á hótelinu eru 250 herbergi sem eru nútímalega hönnuð, hlýleg og björt. Öll herbergin eru búin loftkælingu, sjónvarpi, síma, mini-bar (gegn gjaldi) og svölum. Standard herbergin eru 21 fm en Junior svíturnar eru hannaðar með tveimur rýmum, báðum með sjónvarpi og eru í heildina um 44 fm. 

Í garðinum eru þrjár sundlaugar, nuddpottur og sólbekkir en frá hótelgarðinum er fallegt útsýni út á Miðjarðarhafið. Í garðinum er einnig sundlaugarbar og á hótelinu er bæði hlaðborðsveitingastaður og „a la carte“ veitingastaður, bar og sportbar auk líkamsræktaraðstöðu. 

Hótelið býður upp á að bóka sér sólbekk á ströndinni (gegn gjaldi) hjá strandklúbbnum þeirra og hægt er að fá handklæði á hótelinu endurgjaldslaust. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.