Hotel AMI
Hótellýsing

Hótel AMI er fallegt 113 herbergja hótel sem stendur í miðjum strandbænum Petrovac umkringt fallegum gróðri, ólífu og furutrjám. 30 mínútna akstur er til Budva. 

Hótelið er fallega innréttað í hlýlegum stíl og hér er móttakan opin allan sólarhringinn. Líflegt er á hótelinu þar sem lifandi tónlist er á kvöldin.

Herbergin eru rúmgóð og fallega innréttuð. Í öllum herbergjum eru loftkæling, sjónvarp, öryggishólf, skrifborð,  mini-bar. Á baðherbergi er hárþurrka, stækkunarspegill, inniskór og baðsloppar.

Á hótelinu eru 2 sundlaugar, þar af ein innilaug. Sólbekkir eru við sundlaugar og sundlaugabar.

Líkamsrækt og heilsulind, en þar er hægt að panta tíma í líkams- og andlitsmeðferðir, nudd, klippingu og fl. gegn gjaldi.

Tveir veitingastaðir og einn bar eru á hótelinu sem bjóða upp á miðjarðarhafs- og alþjóðlega rétti. Bæði er hægt að panta af matseðli eða njóta dýrindis hlaðborðs. Á hótelinu er boðið upp á morgunverðarhlaðborð. 
 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann, gjaldið er 1.5 evra og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.