Hotel Amphora
Hótellýsing

Hotel Amphora er gott hótel staðsett við ströndina í Split

Hér er fallegt útsýni frá sameiginlegri aðstöðu hótelsins út á haf og yfir næsta nágrenni.  

Á hótelinu eru vel búin herbergi, öll með sjónvarpi, mini-bar, öryggishólfi og loftkælingu. Á baðherbergi er hárþurrka. Á öllum herbergjum eru svalir, sloppar og inniskór. 

Á hótelinu er góður veitingastaður sem býður upp á morgun- og hádegisverð ásamt kvöldverði. Hér er líkamsræktaraðstaða og heilsulind ásamt þremur sundlaugum í garðinum. Þá er hér einnig snakkbar hjá móttöku hótelsins og bar við sundlaugina.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Fallegt, vel staðsett hótel