Hotel & Apartments Myramar Fuengirola
Hótellýsing

Hótel Myramar Fuengirola er staðsett á þéttbýlu svæði í Fuengirola. Um 10 mínútna gangur er niður á strönd og stór verslunarmiðstöð, Myramar, er rétt hjá. Hótelið leggur mikla áherslu á afþreyingu fyrir börn og hentar því fjölskyldum afar vel.

Íbúðirnar er mjög einfaldar en snyrtilegar. Í þeim öllum má finna loftkælingu, öryggishólf, sjónvarp og eldhúskrók með örbylgjuofni, ísskáp, brauðrist og eldhúsáhöldum. Inni á baðherbergi er baðkar með sturtu. Athugið, það fylgja ekki svalir stúdíó íbúðum. Ef bókað er íbúð með einu eða tveimur svefnherbergjum fylgja svalir með auk þess sem hárþurrka er á baðherbergjum með tveimur svefnherbergjum.

Hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu, Colonial, þar sem framreiddur er morgunverður og kvöldverður. Mörgum sinnum í viku eru sérstök þemakvöld á veitingastaðnum. Að auki má finna A la carte veitingastað, Olea, sem sérhæfir sig í heilsusamlegum réttum þar sem áhersla er lögð á notkun ólífu olíu í öllum réttum. Á sundlaugarbarnum er svo hægt að fá ýmsa smárétti, kokteila, úrval heitra og kaldra drykkja og svalandi ís.

Tvær sundlaugar eru í hótelgarðinum, þar af ein barnalaug. Sérstakt útisvæði er í garðinum ætlað börnum þar sem börn geta fengið útrás í leik. Einnig er barnaklúbbur starfræktur þar sem bryddað er daglega upp á nýjungum fyrir börnin. Á kvöldin er skemmtidagskrá fyrir allan aldur, mini-diskó, leikir og margt fleira.

Til gamans má geta að margir golfvellir eru í grennd við hótelið.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Gott og fjölskylduvænt hótel!