Hotel Best Benalmadena
Hótellýsing

Best Benalmádena hótelið er staðsett alveg við strönd og rétt hjá hótelinu Sunset Beach Club sem margir Íslendingar þekkja. Um 30 mín ganga er upp í Arroyo de la Miel miðbæjarkjarnann og í Puerto Marina snekkjubátahöfnina.

Hótelið er fjölskylduvænt og hér er boðið upp á allt innifalið þjónustu. Móttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er að finna hlaðborðsveitingastað og tvo bari, annar staðsettur við sundlaugina. 

ATH. Ekki má mæta í kvöldverð í sundfatnaði, sandölum, stuttbuxum eða stuttermaskyrtum.

Hér eru ágæt herbergi, öll búin síma, sjónvarpi, mini-bar, loftkælingu og öryggishólfi. Á baðherbergi er hárþurrka. Öll herbergin eru með svölum og hægt er að sjá út á hafið.  

Á hótelinu er góður sundlaugargarður, en þó ekki stór. Þar er lítil sundlaug, barnalaug, lítið barnaleiksvæði, sólbekkir og einnig eru í boði kósý, tvíbreiðir sólbekkir með himnasæng sem eru staðsettir með fram ströndinni. Þá er hér einnig líkamsræktaraðstaða, heilsulind, leikherbergi (e. game room) og starfræktur er barnaklúbbur frá miðjum júní til lok ágúst og jafnframt er boðið upp á skemmtidagskrá eða lifandi tónlist á kvöldin. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.