Hotel Best Siroco
Hótellýsing

Hér er um að ræða einfaldan gistivalkost, vel staðsettan í Benalmádena.

Hótelið er í um 15 mínútna göngufæri frá snekkjubátahöfninni Puerto Marina, en um 5 mínútna gangur er að ströndinni. Á götunni sem liggur meðfram ströndinni er að finna veitingastaði og bari. 

Herbergin eru einföld, öll búin síma, sjónvarpi, litlum kæliskáp, loftkælingu (aðeins í boði yfir hásumartímann), öryggishólfi og svölum. Í standard herbergjunum mega vera að hámarki fjórir aðilar, en það er í einu rými með tveimur queen size rúmum. 

Góður sundlaugargarður er á hótelinu með tveimur sundlaugum, barnalaug og góðu svæði til sólbaða með sólbekkjum og sólhlífum. Á hótelinu er barnaklúbbur fyrir 5 ára og eldri, hárgreiðslustofa, heilsulind, kaffitería, leikvöllur fyrir börn, hlaðborðsveitingastaður og tveir barir. Jafnframt er hér líkamsræktarsalur. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.