Hotel Best Triton
Hótellýsing

Hotel Best Triton er frábærlega vel staðsett hótel alveg við ströndina í Benalmádena.

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn. 

Herbergin eru björt og nútímalega innréttuð. Þau eru öll búin helstu þægindum, svo sem sjónvarpi, síma, loftkælingu/hitara, öryggishólfi og mini-bar gegn gjaldi. Á baðherbergjum er hárþurrka. Svalir eða verönd fylgja öllum herbergjum.

Yfir háannatíma er skemmtidagskrá daglega bæði á daginn og kvöldin, en nokkrum sinnum í viku utan þess tíma. Lukkudýr hótelsins skemmtir auk þess börnum yfir háannatímann. Líkamsræktaraðstöðu má finna á hótelinu, tennisvöll og afþreyingarsvæði. Að auki er hárgreiðslustofa á hótelinu. Gegn gjaldi er hægt að nýta sér heilsulind hótelsins þar sem m.a. má finna sauna og tyrkneskt bað.

Í garðinum er góð sundlaug og flott barnalaug með rennibrautum og fleira skemmtilegu fyrir börnin. Þar má auk þess finna stóra verönd með sólbekkjum og sólhlífum. Hægt er að leigja handklæði gegn 10 evru tryggingargjaldi sem fæst svo endurgreitt.

Á hótelinu er kaffitería og hlaðborðsveitingastaður þar sem eldað er fyrir opnum tjöldum. Krafist er snyrtilegs klæðnaðar þegar snætt er á kvöldin og þurfa karlmenn að klæðast síðbuxum. Að auki er sundlaugarbar á hótelinu.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma. 

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Fallegt og sjarmerandi hótel!