Hotel BlueBay Banus
Hótellýsing

Hotel BlueBay Banus er skemmtilegt hótel, hannað eins og lítið þorp í andalúsískum stíl með lágreistum húsum en inni á milli þeirra eru lítil torg, eftirlíkingar eða smærri útgáfur af torgunum í gamla bænum í Marbella. Hótelið býður upp á fjölbreytta þjónustu og er tilvalið fyrir þá sem langar að dvelja á Marbella-svæðinu, sem margir telja fallegasta bæ Costa del Sol strandlengjunnar. Hótelið er staðsett í um 20 mínútna göngufjarlægð frá Puerto Banus, einni af glæsilegustu snekkjubátahöfnum Spánar en einnig stoppar strætisvagn fyrir framan hótelið fyrir þá sem vilja fara niður í miðbæ Marbella (7 km).

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn og hægt að ráðfæra sig við starfsfólk og/eða panta ýmis konar þjónustu.

Herbergin eru rúmgóð og notaleg og vel búin öllu því helsta, t.d loftkælingu, síma, sjónvarpi og öryggishólfi (gegn gjaldi). Svalir eða verönd fylgja öllum herbergjum. Á baðherbergi er hárþurrka.

Garður hótelsins er stór, en þar má finna þrjár sundlaugar, þar af eina barnalaug og sólarsvæði með sólbekkjum og sólhlífum. Leiksvæði er í garðinum þar sem hægt er að spila borðtennis, billiard og fleira skemmtilegt. Þá er hér einnig blakvöllur og hægt að spila vatnapóló. Barnaklúbbur er starfræktur fyrir yngstu börnin ásamt sér leiksvæði fyrir börn. Skemmtidagskrá með lifandi tónlist og sýningum fyrir alla aldurshópa er svo daglegur viðburður yfir háannatímann.

Fjölbreytta þjónustu gegn gjaldi er hægt að nýta sér á hótelinu, t.d. þvottaþjónustu, barnapössun og læknisþjónustu. Auk þess er hægt að bóka ýmsar nudd- og dekurmeðferðir eða versla í mini-markaðnum. Á strandklúbbi hótelsins hjá ströndinni er hægt að leigja handklæði. Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða.

Góður hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu þar sem framreiddir eru þjóðlegir sem og alþjóðlegir réttir. Að auki er snarlbar á hótelinu sem býður upp á fjölbreytta alþjóðlega smárétti og sundlaugarbar þar sem hægt er að fá mikið úrval kokteila og annarra drykkja.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu gegn gjaldi, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna. 

Sjarmerandi hótel sem hefur allt til alls!