Hotel Bluesea le Printemps
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt hótel sem staðsett er í nýja bænum Gueliz í Marrakech. Um 15 mínútna akstursfjarlægð Jemaa el-Fna torginu í miðborg Marrakech. 

Á hótelinu er sannkölluð Marokkósk gestrisni og hótelgarði inn í miðju hótelsins.

Herbergin eru falleg og í hefðbundnum marokkóskum en mjög nútímalegum stíl. Þau eru rúmgóð og öll eru búin loftkælingu, síma, sjónvarpi, mini-bar og á baðherbergi er hárþurrka. Öryggishólf er hægt að fá gegn gjaldi. 

Á hótelinu er einn veitingastaður og tveir barir. 

Hótelið er sérstaklega gott fyrir fólk með skerta hreyfigetu og eru í boði ókeypis bílastæði.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.