Hotel Do Carmo er einfalt borgarhótel sem staðsett er við gamla bæinn í höfuðborginni Funchal. Hótelið er skemmtilega hannað í gömlum stíl (Retro) og frábærlega vel staðsett í hlíðinni við gamla bæinn.
Herbergi hótelsins eru einföld og en fallega innréttuð og öll með sjónvarpi, síma, ókeypis nettenginu og baðherbergi. Hægt er að velja á milli herbergja án svala eða með svölum.
Veitingastaður hótelsins ber fram morgunverð og aðrar máltíðir yfir daginn. Einnig er að finna bar á hótelinu með útisvæði og á þaki hótelsins er lítil sundlaug með fallegu útsýni yfir borgina. Enginn garður er á hótelinu.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna.
3 stjörnu borgarhótel með frábæra staðsetningu!