Hotel Do Cerro er vinalegt lítið hótel sem stendur nálægt ströndinni í Albufeira.
Hótelið er staðsett í rólegu umhverfi í 10-15 mínútna göngufjarlægð frá gamla bænum. Staðsetning hótelsins er í brekku með stórkostlegu útsýni yfir sjóinn og næsta nágrenni.
Alls eru 92 herbergi á þessu hóteli, öll búin helstu þægindum eins og sjónvarpi, loftkælingu og svölum eða verönd.
Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða, inni- og útisundlaug og heilsulind. Skemmtidagskrá er í boði fyrir börn yfir sumartímann. Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður en einnig er „A la carte“ veitingastaður.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Notalegt hótel