Hotel Globo
Hótellýsing

Hotel Globo er gott hótel, vel staðsett í um 10 mínútum frá miðbæ Split. Umhverfi hótelsins er skemmtilegt en þar mætir gamli bærinn nútímanum í allri sinni dýrð. 

Hótelið er lítið en þar eru aðeins 33 herbergi. Öll herbergin eru rúmgóð og innréttuð í hlýlegum stíl. Á herbergjum má finna sjónvarp, loftkælingu, síma, mini-bar, öryggishólf og kaffi- og te aðstöðu. Á baðherbergi er hárþurrka og stækkunarspegill. 

Á hótelinu er móttakan opin allan sólarhringinn og hér er morgunverðarhlaðborð. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Vel staðsett hótel í Split