Hotel Imperial Plaza
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt hótel staðsett á Semlalia torginu í Marrakech. Hótelið stendur í hárri byggingu og frá 6. hæð hótelsins er glæsilegt útsýni yfir borgina og hægt er að virða fyrir sér Moskuna. 

Á hótelinu eru 114 herbergi, búin öllum helstu þægindum. Öll herbergin eru um 26fm með loftkælingu, sjónvarpi, mini-bar, síma, öryggishólfi, svölum og á baðherbergi er ýmist sturta eða baðkar og hárþurrka. Hægt er að panta herbergisþjónustu (e. room service) gegn gjaldi. 

Hér er veitingastaður staðsettur á fyrstu hæð hótelsins. Veitingastaðurinn býður upp á morgunverðarhlaðborð en einnig er hægt að fá alþjóðlega og marokkóska rétti utan þess tíma. Þá er hér einnig heilsulind og á þakverönd hótelsins er sundlaug, sólhlífar og sólbekkir. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.