Hotel International
Hótellýsing

Hótelið er staðsett í viðskiptahverfi Zagreb sem er í um 30 mínútna göngufæri frá miðbænum. 

Á hótelinu eru 207 herbergi. Í öllum herbergjum er einföld og ljós innrétting. Herbergin eru rúmgóð og eru öll búin loftkælingu, inniskóm, mini-bar, kaffi- og te aðstöðu, sjónvarpi, öryggishólfi og síma. Á baðherbergi eru snyrtivörur og hárþurrka. 

Á hótelinu er góður veitingastaður með morgunverðarhlaðborði, en þar er einnig hægt að fá „A la carte“ rétti á kvöldin. Þá er hér einnig bar með setustofu þar sem hægt er að kaupa drykki og snarl. 

Hér er einnig sauna og líkamsræktarstöð sem gestir hafa aðgang að án gjalds. Opnunartími er frá 7-23.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.